Vara við grjóthruni

Grjótið sem talið er hafa hrunið í skjálftanum.
Grjótið sem talið er hafa hrunið í skjálftanum. Ljósmynd/Ásta Kristín Davíðsdóttir

Veðurstofan varar við aukinni hættu á grjóthruni vegna þeirra jarðhræringa sem standa yfir á Reykjanesskaga.

Stofnuninni var í dag tilkynnt um nýlegt grjóthrun í Trölladyngju og við Grænavatnseggjar og Núpshlíðarháls, sem mun að öllum líkindum haf a hrunið við þennan skjálfta.

Fyrr í sumar var tilkynnt um grjóthrun meðal annars við Kleifarvatn, Litla-Hrút og Driffell. Er fólki bent á að fara varlega í bröttum hlíðum, nálægt bröttum sjávarbjörgum og forðast svæði þar sem grjót getur hrunið.

Morgunblaðið greindi frá því í byrjun mánaðar að landris væri hafið að nýju á Reykjanesskaga. Það hefur síðan haldið áfram á stöðugum hraða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka