Rúmlega 40 manns tjaldað með Palestínumönnunum

Frostlagið yfir Austurvelli gerði það erfitt að setja upp tjöld.
Frostlagið yfir Austurvelli gerði það erfitt að setja upp tjöld. Ljósmynd/Aðsend

Á fimmta tug manns tjaldaði um helgina með Palestínumönnunum sem hafa dvalið á Austurvelli í mót­mæla­skyni frá 27. desember, að sögn aðgerðarsinna.

Eins og fram hefur komið eru Palestínu­menn­irn­ir bú­sett­ir hér á landi sem hafa fengið samþykkta fjöl­skyldusam­ein­ingu. Á meðan hörð og blóðug átök geisa á Gasa­svæðinu ból­ar ekk­ert á sam­ein­ing­unni.

Kröfur Palestínumannanna sem dvelja á Austurvelli eru þríþættar: Að stjórnvöld standi við fjölskyldusameiningarnar, að palestínskt flóttafólk sem hingað er komið fái hæli og að ráðherrar verði við ósk þeirra um fund, þ.e. ut­an­rík­is­ráðherra, dóms­málaráðherra og fé­lags- og vinnu­markaðsráðherra.

Erfitt að tjalda á freðinni jörð

Aðgerðarsinninn Askur Hrafn Hannesson segir við mbl.is að samtals hafi um fimmtíu manns tjaldað á Austurvelli um helgina Palestínumönnunum til stuðnings og „fleiri hundurð manns“ heimsótt aðgerðarsinnanna.

Frostlagið yfir Austurvelli gerði það aftur á móti tiltölulega erfitt að setja upp tjöldin, sem tókst þó á endanum „smá erfiðisverki“ að sögn Asks.

Palestínumennirni tjölduðu við Austurvöll þann 27. desember.
Palestínumennirni tjölduðu við Austurvöll þann 27. desember. Ljósmynd/Aðsend

„Góð stemning yfir nóttina“

Askur segir að það hafi í raun verið gott andrúmsloft á Austurvelli yfir helgina þrátt fyrir erfiðar aðstæður

„Það var alveg góð stemning yfir nóttina. Við vorum í stóra tjaldinu að spila, drekka te og kaffi saman. Og líka ræða málin,“ segir aðgerðarsinninn.

Hann bætir við að nóttin hafi liðið án þess að nokkuð hafi í skorist, fyrir utan atvik þar sem nokkrir unglingspiltar köstuðu litlum flugeldum, svokölluðum „vítum“, að aðgerðarsinnunum en það hafði heppilega ekki alvarlegar afleiðingar í för með sér.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert