Komin heim frá Kýpur

Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir í leik með KR gegn Breiðabliki árið …
Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir í leik með KR gegn Breiðabliki árið 2020. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Knattspyrnukonan Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir er komin aftur í raðir Breiðabliks eftir að hafa leikið með kýpversku meisturunum Apollon Limassol í vetur.

Þórdís fór frá Breiðabliki til Apollon í byrjun ágúst og lék því aðeins fyrri hluta síðasta tímabils með Breiðabliki. Hún lék átta deildarleiki með Apollon og skoraði í þeim sex mörk og spilaði einnig fjóra leiki með liðinu í undankeppni Meistaradeildar Evrópu síðasta haust.

Þórdís er 28 ára gömul og hefur leikið 122 úrvalsdeildarleiki hér á landi og skorað í þeim 24 mörk. Hún á tvo A-landsleiki að baki en hefur auk Breiðabliks spilað með Stjörnunni, Þór/KA, KR og sænsku liðunum Älta og Kristianstad.

Uppfært:
Þórdís gekk síðan frá skiptum frá Breiðabliki yfir í Val.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert