Myndskeið sýnir eyðilegginguna úr lofti

Rússneskar hersveitir halda áfram ítrekuðum árásum á hafnarborgina Maríupol.
Rússneskar hersveitir halda áfram ítrekuðum árásum á hafnarborgina Maríupol. AFP/Maxar Technologies

„Þetta er Maríupol í dag. Eins og dauð borg skotin af óvininum. En hún mun lifa,“ segir í tísti sem sýnir jafnframt myndskeið af borginni.

Í hafnarborginni Maríupol hafa geisað hörð átök vegna innrásarinnar í Úkraínu.

„Þar andar fólk, svangt í kjöllurum brennandi húsa. Hjörtu þeirra slá enn undir rústunum í von um hjálp. Maríupol er í sárum en hún er lifandi vera sem bíður þess að verða bjargað,“ segir að lokum í tístinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert