Biðja verktaka um að tryggja vinnusvæðin sín

Annað kvöld má bú­ast við vind­hviðum frá 13 m/​s og …
Annað kvöld má bú­ast við vind­hviðum frá 13 m/​s og allt að 40 m/​s. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Slysavarnarfélagið Landsbjörg biður almenning um að taka trampólín niður og færa garðhúsgögn og aðra lausamuni inn áður en óveðrið skellur á annað kvöld. Biðlar Landsbjörg einnig til verktaka að tryggja vinnusvæðin sín.

Veður­stofa Íslands hef­ur gefið út gul­ar veðurviðvar­an­ir á stór­um hluta lands­ins annað kvöld. Bú­ast má við vind­hviðum frá 13 m/​s og allt að 40 m/​s. Fólk er hvatt til að ganga frá lausa­mun­um og einnig að huga að niður­föll­um til að forðast vatns­tjón

Landhelgisgæslan hefur þar að auki varað við stórstreymi. Sam­kvæmt út­reikn­ing­um verður um að ræða hæsta stór­streym­is­flóð árs­ins, en fyr­ir Reykja­vík reikn­ast flóðhæðin 4,6 metr­ar.

„Hlutir geta farið að fjúka á hús“

„Í síðasta slæma veðri, föstudaginn langa, þá voru langflest verkefni björgunarsveita bundin við að sinna byggingarsvæðum. Þar var undirbúningur fyrir veðrið ekki nægilega góður,“ segir Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, í samtali við mbl.is.

Því vill hann biðja verktaka um að passa upp á allar klæðningar, einangrunarplötur, girðingar, stillansa og léttara byggingarefni, svo það fari ekki á fok.

„Áður en fólk fer í vetrarfrí er gott að nýta vinnudaginn til þess að tryggja vinnusvæðið. Það er sérstaklega mikilvægt núna þar sem þessi vinnusvæði eru flest inni í þéttri byggð, þannig hlutir geta farið að fjúka á hús.“

Jón Þór Víglundsson - Upplýsingafulltrúi Slysavarnarfélagsins Landsbjargar.
Jón Þór Víglundsson - Upplýsingafulltrúi Slysavarnarfélagsins Landsbjargar. Ljósmynd/Landsbjörg
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert