„Það er allt farið inni í hnénu“

Ólafur Karl Finsen.
Ólafur Karl Finsen. mbl.is/Eva Björk

„Ég verð frá keppni í átta til tólf mánuði,“ sagði Stjörnumaðurinn Ólafur Karl Finsen við mbl.is eftir sigur Stjörnumanna gegn Þrótti í Pepsi-deildinni í knattspyrnu í kvöld.

Ólafur Karl meiddist illa á hné í sigurleiknum á móti Víkingi á sunnudaginn eftir að hafa komið inn á sem varamaður í seinni hálfleik.

„Það er allt farið inni í hnénu,“ sagði Ólafur Karl en krossband í hné hans slitnaði sem og liðbönd og fer hann fljótlega í aðgerð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert