Þórdís er komin í Val

Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir í leik með KR sumarið 2020.
Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir í leik með KR sumarið 2020. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Knattspyrnukonan Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir hefur gengið frá félagaskiptum frá Breiðabliki í Val.

Í gær var gengið frá skiptum Þórdísar til Breiðabliks frá Apollon Limassol á Kýpur en þar lék hún frá byrjun ágúst eftir að hafa spilað með Blikum fyrri hluta tímabilsins.

Hún lék átta deild­ar­leiki með Apollon og skoraði í þeim sex mörk og spilaði einnig fjóra leiki með liðinu í undan­keppni Meist­ara­deild­ar Evr­ópu síðasta haust.

Þór­dís er 28 ára göm­ul og hef­ur leikið 122 úr­vals­deild­ar­leiki hér á landi og skorað í þeim 24 mörk. Hún á tvo A-lands­leiki að baki en hef­ur auk Breiðabliks spilað með Stjörn­unni, Þór/​KA, KR og sænsku liðunum Älta og Kristianstad.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert