Sveindís á skotskónum

Sveindís Jane Jónsdóttir í leik með íslenska landsliðinu í síðasta …
Sveindís Jane Jónsdóttir í leik með íslenska landsliðinu í síðasta mánuði. mbl.is/Kristinn Magnússon

Sveindís Jane Jónsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, skoraði eitt marka Wolfsburg og lagði upp annað þegar liðið vann öruggan útisigur á Werder Bremen í þýsku 1. deildinni í kvöld.

Wolfsburg er þegar búið að tryggja sér annað sæti deildarinnar, en Íslendingalið Bayern München er þýskur meistari.

Sveindís Jane lék allan leikinn fyrir Wolfsburg í kvöld og kom liðinu í 2:0 sjö mínútum fyrir leikslok. Lagði hún svo upp þriðja markið tveimur mínútum síðar.

Var þetta þriðja deildarmark hennar á tímabilinu í tíunda leiknum, en hún missti af helmingi tímabilsins vegna meiðsla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka