Karlmaður sem ákærður var fyrir fjölmörg brot gagnvart eiginkonu sinni og stjúpdætrum á um sex ára tímabili var í dag dæmdur í 15 mánaða óskilorðsbundið fangelsi. Þetta staðfestir Kolbrún Benediktsdóttir, saksóknari í málinu, en dómshald í málinu var lokað.

Í samtali við mbl.is strax eftir dómsuppkvaðningu segir hún að svo virðist vera sem maðurinn hafi verið sýknaður af helstu ákæruliðunum, en þeir voru kynferðisbrot og nauðgun.
Frétt mbl.is: Glíma við afleiðingar ofbeldisins
Maðurinn var ákærður fyrir að hafa ítrekað nauðgað eiginkonu sinni í sex ár, hótað henni að hann myndi stunda kynlíf með dætrum hennar og henda þeim út af heimilinu. Þá sendi hann eiginkonunni og stjúpdætrunum ítrekað smáskilaboð þar sem hann viðhafði kynferðislegt og klámfengið orðbragð og hótanir um kynferðisbrot.
Maðurinn hafði áður verið dæmdur í nálgunarbann vegna brota sinna, en hann braut það ítrekað meðal annars með að senda þeim fleiri hundruð smáskilaboð með hótunum um líkamsmeiðingar, líflát og eignarspjöll. Þá mætti hann einnig í stigagang hússins sem mæðgurnar búa í eftir að nálgunarbannið var sett.
Uppfært kl 13:05: Samkvæmt dómnum sem hefur verið birtur á vef héraðsdóms þarf maðurinn að greiða eiginkonu sinni og dætrum 1,9 milljónir í skaðabætur. Þá þarf hann að greiða þriðjung málsvarnarlauna verjanda síns og þriðjung þóknunar réttargæslumanna brotaþola.
Frétt mbl.is: Fastar í vítahringnum árum saman
Frétt mbl.is: Áfram í haldi vegna brota gegn mæðgum