Reyna að laga myndavélina fyrir íslenska atriðið

Eurovision | 14. maí 2022

Reyna að laga myndavélina fyrir íslenska atriðið

Myndatökuvélin sem getur færst eftir teinum fyrir ofan salinn í Tórínó virðist vera föst.

Reyna að laga myndavélina fyrir íslenska atriðið

Eurovision | 14. maí 2022

Horft yfir salinn í upphafi kvölds.
Horft yfir salinn í upphafi kvölds. AFP

Myndatökuvélin sem getur færst eftir teinum fyrir ofan salinn í Tórínó virðist vera föst.

Myndatökuvélin sem getur færst eftir teinum fyrir ofan salinn í Tórínó virðist vera föst.

Frá þessu greinir sjónvarpsefnisframleiðandinn Gísli Berg á Twitter, en Stefán Eiríksson útvarpsstjóri deilir innleggi Gísla á miðlinum.

„Það útskýrir þessi skrítnu loftskot,“ skrifar Gísli og bætir við að verið sé að reyna að koma myndavélinni í lag áður en íslenska atriðið fer á svið.

Ísland er nr. 18 í röð flytjenda í kvöld, á sama tíma og sveitarstjórnarkosningum dagsins fer brátt að ljúka.

Fylgst er áfram með framvindu kvöldsins hér:

mbl.is