Seðlabankinn hækkar stýrivexti um eina prósentu

Vextir á Íslandi | 22. júní 2022

Seðlabankinn hækkar stýrivexti um eina prósentu

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um eina prósentu. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 4,75%. Þeir hafa ekki verið hærri í rúm fimm ár.

Seðlabankinn hækkar stýrivexti um eina prósentu

Vextir á Íslandi | 22. júní 2022

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um eina prósentu. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 4,75%. Þeir hafa ekki verið hærri í rúm fimm ár.

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um eina prósentu. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 4,75%. Þeir hafa ekki verið hærri í rúm fimm ár.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands. 

Er hækkunin enn meiri en hagfræðideild Landsbankans hafði spáð en deildin spáði 0,75% hækkun. 

Kynning á hækkuninni fer fram klukkan hálf tíu nú fyrir hádegi og verður hún sýnd í beinu streymi hér á mbl.is.

Tveggja prósenta hækkun á tæpum tveimur mánuðum

Síðast voru stýrivextir hækkaðir 4. maí síðastliðinn og þá voru þeir einnig hækkaðir um eina prósentu. Var það mesta hækkun stýrivaxta sem hafði verið framkvæmd frá hruni.

„Samkvæmt bráðabirgðatölum þjóðhagsreikninga var nokkru meiri hagvöxtur á fyrsta fjórðungi ársins en gert var ráð fyrir í maíspá Peningamála. Vísbendingar eru jafnframt um að þróttur innlendra umsvifa verði áfram kröftugur og hlutfall fyrirtækja sem segjast skorta starfsfólk hefur ekki mælst hærra frá árinu 2007. Á móti vegur að væntingar bæði heimila og fyrirtækja um efnahagsframvinduna hafa heldur dalað og töluverð óvissa er um alþjóðlegar efnahagshorfur,“ segir í yfirlýsingu peningastefnunefndar.

Líklegt að herða þurfi taumhaldið enn frekar

Þar kemur fram að bætt hafi í verðbólguna í maí en hún mældist 7,6%. Þá vegi hækkun húsnæðisverðs og annarra innlendra kostnaðarliða þungt auk þess sem alþjóðlegt olíu- og hrávöruverð hefur hækkað mikið. Segir í yfirlýsingunni að verðhækkanir séu á breiðum grunni og að undirliggjandi verðbólga hafi aukist. Sömuleiðis hafa verðbólguvæntingar hækkað á flesta mælikvarða og eru þær yfir verðbólgumarkmiði.

„Peningastefnunefnd telur líklegt að herða þurfi taumhald peningastefnunnar enn frekar til að tryggja að verðbólga hjaðni í markmið innan ásættanlegs tíma. Peningastefnan mun á næstunni ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga. Ákvarðanir í atvinnulífi, á vinnumarkaði og í ríkisfjármálum munu skipta miklu um hversu hátt vextir þurfa að fara.“

Fréttin hefur verið uppfærð

mbl.is