Veðrið hefst með hreti og snjókomu

Frost á Fróni | 19. janúar 2023

Veðrið hefst með hreti og snjókomu

Óveðrið sem spáð er næstu daga er að hefjast, tekið hefur að rigna yfir Keflavík en þar er hitastig komið yfir frostmarki.

Veðrið hefst með hreti og snjókomu

Frost á Fróni | 19. janúar 2023

Hér má sjá vindaspá fyrir morgundaginn.
Hér má sjá vindaspá fyrir morgundaginn. Kort/Veðurstofa Íslands

Óveðrið sem spáð er næstu daga er að hefjast, tekið hefur að rigna yfir Keflavík en þar er hitastig komið yfir frostmarki.

Óveðrið sem spáð er næstu daga er að hefjast, tekið hefur að rigna yfir Keflavík en þar er hitastig komið yfir frostmarki.

Búast má við því í öðrum landshlutum að veðrið hefjist með hreti og snjókomu en fram undir morgun hækkar hitastig og ráðgert er að það rigni á gjörvöllu landinu.

Þetta segir Marcel de Vries, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, í samtali við mbl.is. Marcel segir að versta veðrið verði vestan og sunnan til á landinu, en einnig verði hvasst á Norðausturlandi.

Byrjar að lægja á mánudag

„Síðan byrjar smám saman að draga úr verðinu þegar það líður á mánudaginn,“ segir hann.

Í fyrramálið verður hiti yfir frostmarki í flestum landshlutum og hiti gæti síðdegis á morgun farið upp í allt að tíu stig á Suðurlandi og Norðausturlandi. Almennt er spáð fimm til tíu stiga hita á morgun.

Marcel segir það ekki í skoðun að hækka viðbúnaðarstig Veðurstofunnar í appelsínugult.

mbl.is