Þetta eru dýrustu sundlaugarnar á landinu

Ferðumst innanlands | 2. ágúst 2023

Þetta eru dýrustu sundlaugarnar á landinu

Á landsbyggðinni er að finna fjölmargar sundlaugar sem bjóða sundlaugargestum upp á mismunandi upplifun, allt frá stórbrotnu útsýni og góðri sólbaðsaðstöðu yfir í skemmtilegar rennibrautir.

Þetta eru dýrustu sundlaugarnar á landinu

Ferðumst innanlands | 2. ágúst 2023

Glæsilegt útsýni frá sundlauginni í Laugarnesi við Birkimel.
Glæsilegt útsýni frá sundlauginni í Laugarnesi við Birkimel. Ljósmynd/Sundlaugar.is

Á landsbyggðinni er að finna fjölmargar sundlaugar sem bjóða sundlaugargestum upp á mismunandi upplifun, allt frá stórbrotnu útsýni og góðri sólbaðsaðstöðu yfir í skemmtilegar rennibrautir.

Á landsbyggðinni er að finna fjölmargar sundlaugar sem bjóða sundlaugargestum upp á mismunandi upplifun, allt frá stórbrotnu útsýni og góðri sólbaðsaðstöðu yfir í skemmtilegar rennibrautir.

Í síðustu viku tók ferðavefur mbl.is saman verðlag sundlauga á höfuðborgarsvæðinu sem leiddi í ljós að dýrasta sundferðin var í Reykjavík. 

Dýrasta sundferðin á Húsafelli

Mikil umræða varð til á Facebook-hópnum „Fjármálatips“ í síðustu viku þegar birt var mynd af verðskrá sundlaugarinnar á Húsafelli, en þar kostar aðgangur fyrir fullorðna í laugina 3.800 krónur. Börn á aldrinum 10 til 16 ára borga 1.500 krónur í aðgangseyri og frítt er fyrir börn undir 10 ára aldri. 

Tvær laugar, tveir heitir pottar, kaldur pottur og gufubað prýða …
Tvær laugar, tveir heitir pottar, kaldur pottur og gufubað prýða sundlaugina á Húsafelli. Ljósmynd/Husafell.is

Þar á eftir kemur sundlaugin í Laugarnesi við Birkimel, en þar kostar sundferðin 1.700 krónur fyrir fullorðna og 500 krónur fyrir börn á aldrinum 6 til 16 ára. Þá er frítt í laugina fyrir börn til 5 ára aldurs. 

Frá sundlauginni í Laugarnesi er glæsilegt útsýni yfir Breiðafjörð.
Frá sundlauginni í Laugarnesi er glæsilegt útsýni yfir Breiðafjörð. Ljósmynd/Sundlaugar.is

Því næst koma tvær laugar, annars vegar Skeiðalaug í Brautarholti sem er í Skeiða- og Gnúpverjahreppi og hins vegar Lýsulaugar í Staðarsveit sem er á Snæfellsnesi. 

Í Skeiðalaug og Lýsulaugar kostar sundferðin 1.500 krónur fyrir fullorðna. Þá borga börn á aldrinum 11 til 18 ára 500 krónur í Skeiðalaug, en börn á aldrinum 10-17 ára borga það sama í Lýsulaugar. Sem stendur er Skeiðalaug lokuð tímabundið vegna framkvæmda en búist er við að hún opni aftur síðar í sumar.

Skeiðalaug í Brautarholti. Þar er sundlaug, heitur pottur, vatnsgufubaðstofa, kaldur …
Skeiðalaug í Brautarholti. Þar er sundlaug, heitur pottur, vatnsgufubaðstofa, kaldur pottur og infrarauð sauna. Ljósmynd/Sundlaugar.is
Lýsulaugar í Staðarsveit. Í lauginni er náttúrulegt heitt ölkelduvatn beint …
Lýsulaugar í Staðarsveit. Í lauginni er náttúrulegt heitt ölkelduvatn beint úr jörðu, en það er steinefnaríkt og mælist hátt magn af magnesíum og kalsíum í vatninu. Ljósmynd/Sundlaugar.is

3.130 króna munur á dýrustu og ódýrustu sundferðinni

Ódýrasta sundferðin á landinu er í Vogum á Vatnsleysuströnd, en þar kostar sundferðin 670 krónur fyrir fullorðna, 300 krónur fyrir börn á aldrinum 6 til 17 ára og er ókeypis fyrir börn til 6 ára aldurs.

Sundlaugin í Vogum. Þar er útisundlaug, heitur pottur, vaðlaug, kalt …
Sundlaugin í Vogum. Þar er útisundlaug, heitur pottur, vaðlaug, kalt kar og sauna. Ljósmynd/Sundlaugar.is

Næst ódýrasta sundferðin er í sundlaugina á Skagaströnd en þar kostar sundferðin 700 krónur fyrir fullorðna og er ókeypis fyrir börn til 16 ára aldurs. 

Sundlaugin á Skagaströnd. Fram kemur á vef sundlauganna að sú …
Sundlaugin á Skagaströnd. Fram kemur á vef sundlauganna að sú hefð sé orðin þekkt um allt land að gestum í heita pottinum sé færður kaffisopi. Ljósmynd/Sundlaugar.is
mbl.is