Trierweiler komin til Indlands

Valeria Trierweiler, fyrrum sambýliskona Frakklandsforseta, lenti í Mumbai á Indlandi …
Valeria Trierweiler, fyrrum sambýliskona Frakklandsforseta, lenti í Mumbai á Indlandi í nótt. AFP

Valerie Trierweiler, fyrrverandi sambýliskona François Hollandes, forseta Frakklands, er komin til Indlands. Þetta er í fyrsta skipti sem Trierweiler kemur opinberlega fram eftir að tímaritið Closer fjallaði um samband forsetans við leikkonuna Julie Gayet.

Trierweiler kom til indversku borgarinnar Mumbai rétt eftir miðnætti í nótt. Ferðalag hennar mun standa í tvo daga. Trierweiler ræddi ekki við fréttamenn þegar hún lenti. Ljósmyndarar flykktust að henni þegar hún gekk yfir í bíl sem beið eftir henni á flugvellinum.

Trierweiler mun meðal annars heimsækja sjúkrahús í Mumbai í dag. Þá mun hún einnig snæða hádegisverð ásamt eiginkonum nokkurra helstu kaupsýslumanna landsins og taka þátt í gala-kvöldverði í kvöld á lúxushótelinu Taj Mahal þar sem hún dvelur. Gert er ráð fyrir blaðamannafundi í dag í tengslum við ferð hennar en þó er óvíst hvort hún ræðir sjálf við fjölmiðla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert