Útför George Floyd fer fram í Houston Texas 9. júní næstkomandi. Alls hafa safnast um 7,6 milljónir Bandaríkjadala, rúmur milljarður króna, í fjáröflun fyrir útfararkostnað, lögfræðiaðstoð og menntun barna Floyd.
Hörð og blóðug mótmæli hafa brotist út víða um Bandaríkin á síðust dögum í kjölfar dauða Floyd. Fyrrverandi lögreglumaðurinn Derek Chauvin hefur verið handtekinn, en hann þrengdi að öndunarvegi Floyd með því að krjúpa á hálsi hans í meira en átta mínútur, með þeim afleiðingum að Floyd kafnaði.
Á fimmtudag fer fram minningarathöfn í Minneapolis, þar sem Floyd lést. Þá verður haldin minningarathöfn í Norður-Karólínu á laugardag, en Floyd var þaðan.
Víða verður útgöngubann í kvöld, meðal annars í Minneapolis, Washington DC og New York.
Chauvin fer fyrir dómara í næstu viku, en fjölskylda Floyd hefur kallað eftir því að þrír aðrir lögreglumenn, sem höfðu aðkomu að handtöku Floyd, verði einnig ákærðir. Þá hefur fjölskyldan sagt að ofbeldi, skemmdarverk og rán á meðal mótmælenda séu óviðunandi.
Yfirlögregluþjónn í Kentucky hefur verið rekinn eftir að liðsmenn lögreglu skutu á hóp mótmælenda með þeim afleiðingum að David McAtee, eigandi veitingastaðarins Ya-Ya's BBQ, lést.
Atvikið átti sér stað í Louisville snemma í morgun. Borgarstjóri Louisville, Greg Fisher, segir að lögreglumennirnir hafi brugðist með því að kveikja ekki á myndavélum á búningum sínum. Slík mistök verði ekki viðgengin og var lögreglustjóri borgarinnar því rekinn.