Bændur ákveða að loka uppboðshúsinu

Loðdýrabændur skoða skinn í danska uppboðshúsinu í Glostrup.
Loðdýrabændur skoða skinn í danska uppboðshúsinu í Glostrup. mbl.is/Helgi Bjarnason

Grundvöllur Kopenhagen Fur uppboðshússins í Danmörku er brostinn og eigendur þess, danskir minkabændur, hafa ákveðið að slíta félaginu og leggja niður starfsemina á næstu tveimur til þremur árum.

Þó verða flokkuð skinn í vetur og seld á fjórum uppboðum á komandi sölutímabili.

Umdeild ákvörðun og tilmæli dönsku ríkisstjórnarinnar um niðurskurð allra minka í Danmörku vegna þess sem þau töldu hættulegt stökkbreytt afbrigði kórónuveirunnar hefur mikil áhrif á greinina enda Danir stórir í minkarækt og sölu minkaskinna. Kopenhagen Fur er stærsta uppboðshús heims í skinnavörum. Þar eru um 300 starfsmenn. Íslenskir minkabændur hafa selt framleiðslu sína þar í mörg ár og fengið góða þjónustu.

Eigendur og stjórnendur fyrirtækisins telja að grundvöllur fyrirtækisins sé brostinn með ákvörðun ríkisstjórnarinnar. Fjármunirnir sem safnast hafa þar upp renna til eigendanna, danskra minkabænda, sem eru í erfiðri stöðu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert