Anna sækist eftir 2.-3. sæti

Anna hefur setið í bæjarstjórn í Reykjanesbæ í bráðum eitt …
Anna hefur setið í bæjarstjórn í Reykjanesbæ í bráðum eitt kjörtímabil og er aðalmaður í lýðheilsuráði og varamaður í fræðsluráði. Ljósmynd/Aðsend

Anna Sigríður Jóhannesdóttir sækist eftir 2. - 3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ, sem fer fram 26. febrúar næstkomandi.

Anna hefur setið í bæjarstjórn í Reykjanesbæ í bráðum eitt kjörtímabil og er aðalmaður í lýðheilsuráði og varamaður í fræðsluráði. Kjörtímabilið á undan var hún aðalmaður í fræðsluráði. Hún er með BA gráðu í sálfræði og MBA frá Háskóla Íslands.

„Ég hef ávallt lagt áherslu á heilsu og velferð allra bæjarbúa. Menntamál og lýðheilsa standa mér næst, þessir málaflokkar leggja grunn að góðu og heilbrigðu samfélagi,“ er haft eftir Önnu í tilkynningu.

Þar segir hún að íþróttamál og almenna hreyfingu vera henni ofarlega í huga og hún vilji halda áfram að efla lýðheilsu fyrir alla íbúa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka