Binni Glee stal stílnum af Britney Spears og Justin Timberlake

Fatastíllinn | 9. október 2023

Binni Glee stal stílnum af Britney Spears og Justin Timberlake

Áhrifa­vald­ur­inn og raun­veru­leika­stjarn­an Brynj­ar Steinn Gylfa­son, bet­ur þekkt­ur sem Binni Glee, stal senunni þegar nýjjr þættir um strákahljómsveitina IceGuys voru frumsýndir á dögunum. Binni var klæddur eins og alvöru poppstjarna enda ekki annað við hæfi miðað við tilefnið. 

Binni Glee stal stílnum af Britney Spears og Justin Timberlake

Fatastíllinn | 9. október 2023

Binni Glee, Britney Spears og Justin Timberlake eru með sama …
Binni Glee, Britney Spears og Justin Timberlake eru með sama stílinn. Myndin af poppstjörnunum var tekin 2001 en myndirnar af Binna voru teknar árið 2023. Samsett mynd

Áhrifa­vald­ur­inn og raun­veru­leika­stjarn­an Brynj­ar Steinn Gylfa­son, bet­ur þekkt­ur sem Binni Glee, stal senunni þegar nýjjr þættir um strákahljómsveitina IceGuys voru frumsýndir á dögunum. Binni var klæddur eins og alvöru poppstjarna enda ekki annað við hæfi miðað við tilefnið. 

Áhrifa­vald­ur­inn og raun­veru­leika­stjarn­an Brynj­ar Steinn Gylfa­son, bet­ur þekkt­ur sem Binni Glee, stal senunni þegar nýjjr þættir um strákahljómsveitina IceGuys voru frumsýndir á dögunum. Binni var klæddur eins og alvöru poppstjarna enda ekki annað við hæfi miðað við tilefnið. 

Binni var í gallaklæðnaði frá toppi til táar í kvikmyndahúsinu. Ekki nóg með að Binni klæddist aðeins gallaefni eða það sem kallast erlendis „denim on denim“ þá voru fötin líka úr mismunandi gerð af gallaefni. Minnti íslenski áhrifavaldurinn helst á poppstjörnurnar Britney Spears og Justin Timberlake þegar þau voru upp á sitt besta í kringum síðustu aldamót. 

Binni Glee var langflottastur.
Binni Glee var langflottastur. Ljósmynd/Thelma Arngrímsdóttir

Ekki hægt að gleyma fötum Spears og Timberlake

Fyrrverandi stjörnuparið Spears og Timberlake mætti í gallaklæðnaði í stíl á tónlistarverðlaunahátíð árið 2001 en á þessum tíma var Timberlake einmitt í heitustu strákahljómsveit heims.

Á hátíðinni var  Timberlake í gallajakka, gallabuxum og með gallahatt. Poppprinsessan Spears var hins vegar í gallakjól úr mismunandi gallaefni, rétt eins og föt Binna voru. Oft er talað um þessi föt þeirra Spears og Timberlake sem föt sem ekki er hægt að gleyma – hvort sem það er jákvætt eða neikvætt!

Britney Spears og Justin Timberlake voru heitasta parið árið 2001.
Britney Spears og Justin Timberlake voru heitasta parið árið 2001. REUTERS/Rose Prouser

Fleiri elska gallafatnað

Það er ekki bara Binni Glee sem hefur klæðst gallafatnaði með góðum árangri. Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, er þekktur fyrir að klæðast gallajakka og gallaskyrtu. Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, klæddist kjól fyrir nokkrum árum sem mætti líkja við kjól Birtney Spears, þó kjóll Lilju hafi vissulega verið aðeins settlegri. 

Lilja Alfreðsdóttir og Kári Sefansson taka sig vel út í …
Lilja Alfreðsdóttir og Kári Sefansson taka sig vel út í gallafatnaði. Samsett mynd
mbl.is