Notaði appið og vann tæpar 13 milljónir

Úrslit í íþróttakappleikjum eru ekki alltaf fyrirsjáanleg. Stundum getur því verið ágætur kostur fyrir tippara að nýta bara sjálfval. 

Það gerði íslenskur tippari í síðustu viku og var með alla þrettán leikina rétta á sunnudagsseðlinum hjá Íslenskum getraunum.

Notaði hann appið hjá Íslenskum getraunum til að tippa og lét appið velja fyrir sig. Miðinn kostaði 894 krónur og skilaði 12,8 milljónum króna. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka