Kanada sendir Úkraínu varnarbúnað

Frá samstöðufundi með Úkraínumönnum í Montreal um helgina.
Frá samstöðufundi með Úkraínumönnum í Montreal um helgina. AFP

Stjórnvöld Kanada hafa tilkynnt að þau muni senda varnarbúnað á borð við hjálma til að hjálpa úkraínska hernum að verjast innrás Rússa.

Úkraínskir hermenn þurfa skotheld vesti, hjálma, gasgrímur og nætursjónauka, sagði kanadíski utanríkisráðherrann Melanie Joly á blaðamannafundi í kvöld.

Aðstoðin er metin á 25 milljónir kanadadollara eða tæplega 2,5 milljarða íslenskra króna.

Joly tók sérstaklega fram að hún hefði fengið persónulega aðstoðarbeiðni frá varaforsætisráðherra Úkraínu, Olhu Stefanishynu.

Varnarmálaráðherrann Anita Anand ítrekaði á sama fundi að aðstoð í formi hernaðaraðgerða væri ekki á dagskrá.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert