Hætt við að malbika Kambana

Hætt hefur verið við framkvæmdir í Kömbum í dag vegna veðurs en til stóð að loka fyrir umferð um Hellisheiði í dag vegna malbikunar. 

Þess í stað er stefnt á að malbika akreinar í báðar áttir neðst í Kömbum á morgun, þriðjudag. Lokað verður yfir Hellisheiði og verður umferð beint um hjáleið um Þrengsli. Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 09:00 til kl. 20:00.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert