Tiger Woods setti vallarmet

Tiger Woods.
Tiger Woods. Reuters.

Tiger Woods gerði sér lítið fyrir og lék á 10 höggum undir pari á öðrum keppnisdegi á Target World meistaramótinu í golfi en þar eigast við 16 útvaldir kylfingar. Woods er með fjögurra högg forskot þegar keppni er hálfnuð en hann er samtals á 13 höggum undir pari eftir að hafa leikið á 62 höggum á öðrum keppnisdegi mótsins.

 Jim Furyk er annar en hann lék á 67 höggum í gær.  Woods bætti vallarmetið á á Sherwood-vellinum í Kaliforníu en hann hefur ekki keppt á atvinnumótum undanfarnar 10 vikur og virðist hafa haft gott af hvíldinni.

Staðan á mótinu

  131 - Tiger Woods (Bandaríkin) 69-62
   135 - Jim Furyk (Bandaríkin) 68-67
   136 - Zach Johnson (Bandaríkin) 69-67
   138 - Padraig Harrington (Írland) 71-67
   139 - Paul Casey (England) 72-67
   140 - Vijay Singh (Fijí) 72-68
   141 - Luke Donald (England) 74-67, Henrik Stenson (Svíþjóð) 69-72, Steve Stricker (Bandaríkin) 72-69
   142 - Mark Calcavecchia (Bandaríkin) 71-71
   143 - Fred Couples (Bandaríkin) 74-69, Lee Westwood (England) 72-71
   144 - Niclas Fasth (Svíþjóð) 72-72
   146 - Brett Wetterich (Bandaríkin) 73-73
   147 - Colin Montgomerie (Skotland) 80-67
   150 - Rory Sabbatini (Suður-Afríka) 69-81

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert