Gerður ætlar að opna nýja kynlífs­tækja­verslun

Framakonur | 7. nóvember 2023

Gerður ætlar að opna nýja kynlífstækjaverslun

Gerður Huld Arinbjarnardóttir, eigandi kynlífstækjaverslunarinnar Blush, greindi frá áformum hennar um að fjölga verslunum, en viðskiptakonan skrifaði undir samning á nýju verslunarhúsnæði fyrr í dag. Hún tilkynnti gleðitíðindin á Instagram-reikningi hennar. 

Gerður Huld Arinbjarnardóttir eigandi Blush.
Gerður Huld Arinbjarnardóttir eigandi Blush. mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

Gerður Huld Arinbjarnardóttir, eigandi kynlífstækjaverslunarinnar Blush, greindi frá áformum hennar um að fjölga verslunum, en viðskiptakonan skrifaði undir samning á nýju verslunarhúsnæði fyrr í dag. Hún tilkynnti gleðitíðindin á Instagram-reikningi hennar. 

Gerður Huld Arinbjarnardóttir, eigandi kynlífstækjaverslunarinnar Blush, greindi frá áformum hennar um að fjölga verslunum, en viðskiptakonan skrifaði undir samning á nýju verslunarhúsnæði fyrr í dag. Hún tilkynnti gleðitíðindin á Instagram-reikningi hennar. 

„Við látum okkur ekki leiðast! Í dag skrifuðum við undir samning á nýju verslunarhúsnæði. Hlökkum til að opna aðra Blush verslun á næsta ári. Hvar heldur þú að nýja búðin okkar verði?“ skrifaði hún við færsluna á Instagram.

Gerður Huld greindi frá því að nýja verslunin muni opna dyr sínar á næsta ári. Hún gaf þó ekkert upp um staðsetningu hennar, en eitt er víst að áhugasamir geta farið að láta sig hlakka til. 

mbl.is