Haukar selja sextán ára strák til Atalanta

Óliver Steinar Guðmundsson.
Óliver Steinar Guðmundsson. Ljósmynd/Hulda Margrét

Óliver Steinar Guðmundsson, sextán ára strákur úr Haukum, hefur skrifað undir þriggja ára samning við ítalska félagið Atalanta í kjölfar þess að Hafnarfjarðarfélagið samþykkti tilboð Ítalanna í hann í síðustu viku.

Þetta kemur fram á heimasíðu Hauka og sagt er að Óliver fari í U17 ára lið félagsins sem sé með mjög öfluga akademíu. Hann hafi farið tvisvar þangað til æfinga áður en gengið var frá samningum, fyrir jól og aftur nú í janúarmánuði.

Óliver lék fyrsta leik sinn með meistaraflokki Hauka á síðasta tímabili og hefur spilað tvo leiki með U15 ára landsliði Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert