Eitt dýrasta einbýlishús landsins til sölu

Húsið stendur við Hrólfsskálavör á Seltjarnarnesi og er tæpir 600 …
Húsið stendur við Hrólfsskálavör á Seltjarnarnesi og er tæpir 600 fm. mbl.is

Eitt af glæsilegustu einbýlishúsum landsins er til sölu og að því er heimildir Morgunblaðsins herma er það falt fyrir 350 milljónir króna. Húsið sem er tæpir 600 fermetrar stendur við Hrólfsskálavör á Seltjarnarnesi.

Sverrir Kristinsson, framkvæmdastjóri fasteignasölunnar Eignamiðlunar, sem hefur eignina til sölu, vildi ekki staðfesta hið ásetta verð, en segir að þetta sé sennilega dýrasta einbýlishús sem Eignamiðlun hefur fengið til sölu. „En við höfum verið með kaupendur að vel staðsettum sjávarlóðum eins og húsið stendur á fyrir meira en hundrað milljónir króna,“ segir hann.

Sverrir er nokkuð bjartsýnn á að markaður sé fyrir eignina. „Við þurfum ekki nema einn kaupanda, hvort sem hann væri hér á Íslandi eða erlendis. Þetta er svipað verð og sett er á dýrustu þakíbúðir hér á landi,“ segir Sverrir.

Sjá hér nánar um eignina á Fasteignavef mbl.is.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert