Konur við stýri PLAY í fyrsta sinn

Maria og Sigrún eru fyrstu kvenflugstjórar flugfélagsins Play.
Maria og Sigrún eru fyrstu kvenflugstjórar flugfélagsins Play. Ljósmynd/Aðsend

Tvær konur hafa hlotið stöðu flugstjóra hjá flugfélaginu Play. Flugstjórarnir eru þær Maria Anastasia Isabella Reichardt og Sigrún Huld Guðmundsdóttir en um er að ræða fyrstu kvenflugstjóra flugfélagsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Maria og Sigrún hafa báðar starfað hjá félaginu í rúmt ár og þær hlutu stöðuhækkunina í aðdraganda alþjóðadags flugmanna, sem er í dag þann 26. apríl.

Í ár verður Play með 10 Airbus farþegaþotur í sínum flota og um 500 starfsmenn en félagið mun fljúga til hátt í fjörutíu áfangastaða í ár.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert