Næsti áfangi Vestfjarðavegar boðinn út

Vinna við lagningu klæðingar á veginum um Teigsskóg.
Vinna við lagningu klæðingar á veginum um Teigsskóg. Ljósmynd/Vegagerðin

Vegagerðin hefur boðið út næsta áfanga Vestfjarðavegar um Gufudalssveit ásamt undirbúningi fyrir brúarsmíði yfir Gufufjörð og Djúpafjörð.

Í því felst nýbygging Vestfjarðavegar á um 3,6 km kafla og bygging um 119 m langrar bráðabirgðabrúar yfir Gufufjörð. Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu. Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar.

Verkið er einn áfangi af mörgum í uppbyggingu Vestfjarðavegar um Gufudalssveit, milli Skálaness og Bjarkarlundar, en framkvæmdir hafa staðið yfir síðustu ár. Einn áfanganna er vegagerð um Teigsskóg og er vinna við hann langt komin. Þar hefur undanfarið verið unnið að því að leggja bundið slitlag en stefnt er að því að opna veginn fyrir umferð í lok októbermánaðar. Þar með verður hægt að leggja af fjallveginn um Hjallaháls sem er í 336 metra hæð.

Einnig er nú unnið að því að leggja bundið slitlag á nýjan veg, um sex kílómetra leið milli Hallsteinsnes og Djúpadals um austanverðan Djúpafjörð. Sá vegur mun tímabundið gegna hlutverki Vestfjarðavegar eða þangað til hægt verður að ljúka síðustu áföngunum sem felast í þverun Gufufjarðar og Djúpafjarðar.

Fyrsta skrefið í því var útboð sem var auglýst föstudaginn 8. september. Þá voru boðnar út fyllingar yfir firðina tvo, gerð vinnuplana og bygging 119 metra langrar bráðabirgðabrúar yfir hluta Gufufjarðar. Þessar framkvæmdir eru nauðsynlegur undirbúningur fyrir næsta útboð sem verður bygging brúa yfir þessa tvo firði. Vinnu við verkið skal ljúka í lok september árið 2025.

Ekki hefur verið staðfest hvenær næsti áfangi verður boðinn út en í drögum að samgönguáætlun er miðað við að byggingu brúnna verði lokið árið 2027. Þangað til þurfa vegfarendur að aka um Ódrjúgsháls.

Þverun Þorskafjarðar hluti af uppbyggingu Vestfjarðavegar

Framkvæmdir við þverun Þorskafjarðar eru einnig hluti af uppbyggingu Vestfjarðavegar. Þar eru framkvæmdir langt komnar en áætlað er að klæða veginn austan við nýju brúna á næstu dögum. Þá er unnið að því að keyra út styrktarlagi að vestanverðu og tengja þannig nýja veginn vestan megin við brúna. Þá er eftir frágangur og uppsetning vegriða en vonast er til að vegurinn yfir Þorskafjörð verði opnaður fyrir umferð síðar á þessu ári. Þar með styttist Vestfjarðavegur um tæpa 10 kílómetra.

Heildarstytting vegarins, þegar öllum framkvæmdum við Vestfjarðaveg, milli Skálaness og Bjarkarlundar, verður lokið, er um 22 km.

Framkvæmdasvæði útboðsins: Vestfjarðavegur (60) um Gufudalssveit, Hallsteinsnes-Skálanes, fyllingar.
Framkvæmdasvæði útboðsins: Vestfjarðavegur (60) um Gufudalssveit, Hallsteinsnes-Skálanes, fyllingar.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert