Ferðaþjónustan fær hálfan milljarð í viðbót

Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu, Lilja Dögg Alfreðsdóttir, ferðamálaráðherra og …
Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu, Lilja Dögg Alfreðsdóttir, ferðamálaráðherra og Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, undirrituðu samniginn í dag. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, ferðamálaráðherra, og Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu, hafa undirritað samning um framhald „Ísland saman í sókn“ sem er markaðsverkefni fyrir íslenska ferðaþjónustu. Verkefnið er hluti af viðspyrnu stjórnvalda vegna Covid-19 heimsfaraldursins.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stjórnarráðinu.

Með samningnum eru verkefninu tryggðar 550 milljónir króna í viðbótarfjármagn sem nýttar verða til að framlengja markaðsverkefnið í ár.

Vilja mæta samkeppninni

Í tilkynningunni segir að tilgangur verkefnisins sé að styrkja ímynd Íslands sem áfangastaðar, auka eftirspurn og viðhalda samkeppnisstöðu íslenskrar ferðaþjónustu og annarra útflutningsgreina.

Verkefnið er unnið í samræmi við framtíðarsýn og leiðarljós íslenskrar ferðaþjónustu til 2030 sem ber yfirskriftina „Leiðandi í sjálfbærri þróun“ og langtímastefnu stjórnvalda og atvinnulífs fyrir íslenskan útflutning.

„Markaðssetning áfangastaðar er langhlaup, og nú þegar gera má ráð fyrir að ferðaþjónusta sé að taka við sér á ný þurfum við að vera tilbúin til þess að mæta þeirri miklu samkeppni sem gera má ráð fyrir frá öðrum áfangastöðum og breyta þessum uppsafnaða áhuga í heimsóknir til landsins. Við erum spennt fyrir því verkefni sem framundan er í samstarfi við íslenska ferðaþjónustu,“ er haft eftir Pétri Þ. Óskarssyni framkvæmdastjóra Íslandsstofu í tilkynningunni.

Hrósar ríkisstjórninni

„Það er mjög mikilvægt og í raun nauðsynlegt fyrir greinina og áfangastaðinn Ísland að fá þennan stuðning núna þegar allir áfangastaðir heims fara að keppast um að ná til sín takmörkuðum fjölda ferðamanna.

Ég vil hrósa ríkisstjórninni fyrir að taka þetta skref núna. Þessi fjárfesting mun skila sér í hraðari viðspyrnu fyrir ferðaþjónustuna í landinu og efnahagslífið í heild,“ er haft eftir Bjarnheiði Hallsdóttur, formanns Samtaka ferðaþjónustunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert