Sigurbjörg heldur oddvitasætinu í Kópavogi

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, oddviti Pírata í Kópavogi, heldur stöðu sinni.
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, oddviti Pírata í Kópavogi, heldur stöðu sinni. Ljósmynd/Aðsend

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, bæjarfulltrúi Pírata í Kópavogi, heldur oddvitasæti sínu fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor.

Prófkjörsúrslitin voru tilkynnt rétt í þessu.

Athygli verkur að hjón vermi sitt hvort sætið ofarlega á listanum; þau Eva Sjöfn Helgadóttir og Matthías Hjartarson.

Efstu sjö sætin skipa:

  1. Sigurbjörg Erla Egilsdóttir
  2. Indriði Ingi Stefánsson
  3. Eva Sjöfn Helgadóttir
  4. Matthías Hjartarson
  5. Margrét Ásta Arnardóttir
  6. Árni Pétur Árnason
  7. Kjartan Sveinn Guðmundsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert