Draugur fallins flugfélags svífur yfir Taílandi

Aðeins stéli flugvélarinnar og hreyflum hefur verið breytt eins og …
Aðeins stéli flugvélarinnar og hreyflum hefur verið breytt eins og sjá má. Ljósmynd/Óli Örn Andreasson

Óla Erni Andreassen brá heldur í brún þegar hann rak augun í flugvél merkta fallna flugfélaginu WOW Air á flugvellinum í borginni Krabi á Taílandi.

„Þetta var svolítið sérstakt, ég sá vélina á planinu og tók mynd, svo er ég bara kallaður út í þessa sömu vél,“ segir Óli. Hann var nýlentur í höfuðborginni Bangkok þegar mbl.is náði tali af honum en hann vakti fyrst athygli á vélunum í innleggi á facebookhópnum Fróðleiksmolar um flug.

„Ég neita því ekki að það var heldur heimilislegt að sjá þessa vél þarna á planinu og ganga eftir gólfteppinu sem stóð á WOW.“

Vörumerki WOW er áberandi inni í vélinni einnig.
Vörumerki WOW er áberandi inni í vélinni einnig. Ljósmynd/Óli Örn Andreasson

Íslenskan áberandi

Um er að ræða flugvél sem flugfélagið Thai Vietjet Air notast við í innanlandsflugi. Flugfélagið hefur, að sögn Óla, sem er mikill áhugamaður um flug, líklegast þurft vél í loftið sem fyrst og ekki haft tíma eða fjármuni til þess að mála vélina að nýju.

„Það kostar jú nokkrar milljónir að breyta um merkingar og innréttingar í vélum, þeir hafa ekki haft fyrir því og þurftu sennilega að byrja að fljúga sem fyrst.“

Þá er íslenskan áberandi í vélinni.

„Þetta er allt á íslensku, „loka“ og „opna“ stendur á neyðarútgöngum. Ég velti því fyrir mér hvort flugfreyjur og flugþjónar hafi hreinlega lært þessi íslensku orð!“

Óli veltir því fyrir sér hvort flugfreyjur og flugþjónar vélarinnar …
Óli veltir því fyrir sér hvort flugfreyjur og flugþjónar vélarinnar þekki íslensku orðin. Ljósmynd/Óli Örn Andreasson

Jólastemning innan um plastjólatré

Spurður út í erindagjörðir sínar í Taílandi segist hann vera í einhvers konar blöndu af jóla-, vetrar- og uppsöfnuðu sumarfríi. Hann heldur þar jól og áramót með fjölskyldunni en hann býr og starfar í fjölmiðlum úti í Danmörku.

Taíland er að miklum hluta búddatrúar en þó vottar fyrir jólastemningu þar eystra. 

„Þeir skreyttu jólatré og spiluðu jólatónlist um jólin á meðan maður gekk þarna um í pálmastuttbuxum. Þetta er allt úr plasti og stakk mjög í stúf allt saman.“

Ljósmynd/Óli Örn Andreasson
Ljósmynd/Óli Örn Andreasson
Ljósmynd/Óli Örn Andreasson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert