Ófært á Holtavörðuheiði

Bílar á Holtavörðuheiði.
Bílar á Holtavörðuheiði. mbl.is/Sigurður Ægisson

Vegurinn um Holtavörðuheiði er ófær. Frekari upplýsingar eru væntanlegar um stöðu mála með morgninum.

Vegagerðin greinir frá þessu.

Vegurinn um Súðavíkurhlíð er sömuleiðis lokaður sökum þess að hættustig vegna snjóflóðahættu er í gildi. Staðan verður tekin aftur þar klukkan 7.

Uppfært kl. 8.41:

Vegurinn um Holtavörðuheiði er enn lokaður. Unnið er að mokstri og frekari upplýsingar eru væntanlegar eftir klukkan 9.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert